17.1.2010 | 22:21
jáháá...
Einhvernvegin "rambaði" ég hérna inn eftir LANGT hlé. Er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að byrja að blogga smá aftur....ég sef á þessu í nótt og næstu nótt og kannski fleiri. Langaði allavega að láta vita að ég er á lífi 
Góða daga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2009 | 21:21
...
Ég var búin að gleyma hvað þetta er æðislegt lag sem er á blogginu mínu. Endilega tékkið á því hérna til vinstri.
Góóóða helgi allir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 18:24
Hvað er málið...
Nú er ég orðlaus...
Ég skil ekkert í þessum skólastjóra að fara í viðtal ef hennar skoðun er sú að þetta hafi ekki verið hrottaleg árás...lausar tennur, glóðurauga og sjúkrahúsferð...hvað er það???
|
Blóðug slagsmál skóladrengja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 18:32
Gleðileg Jól
Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla.
Ég hef það sem allra best hérna fyrir norðan og hlakka til að sjá snúlluna mína á morgun.
Aldrei að vita nema maður kíki e-ð smá út í kvöld.
Hafið það sem best
kær jólakveðja
Annapanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2008 | 14:05
Bloggí blogg..
Það er ekki laust við það að maður sé komin í smá jólaskap
þrátt fyrir þessa rigningu...hvað er í gangi..Reykjavík í hnotskurn 
Ég er búin að baka eina sort af smákökum og það er einni sort meira en síðustu jól sem er skref í rétta átt. Við mæðgur skelltum í súkkulaðibitakökur síðustu helgi og fór það ágætlega. Ég bakaði eina skúffuna (ofnskúfuna með kökunum á döhhh...hehhe) og lengi og eina of stutt
restin bjargaðist. Ég er greinilega alveg komin úr æfingu. Ég var vön hérna áður fyrr að baka þrefalda uppskrift af þessu og LÍKA sörum.. ohh hvað ég VAR dugleg. En það þýðir ekki að standa í þessu þegar þetta fer meira og minna ofan í MINN maga... má alls alls ekki við því.. en nóg um það.
Við mæðgur perluðum einnig mjög mikið og Andrea dóttir systu var með í því. Það er mjög gaman að sitja í rólegheitum með snúllunni sinni og perla. Svo var auðvitað straujað og úr þessu varð mikið skraut og gaman.
Tölvan mín er að hrekkja mig þessa dagana..helv..vírus..kom í gegnum facebook bara svo þið vitið það.
Þetta verða skrýtin jól fyrir mig og stubbu, hún verður ekki með mér. En henni hlakkar auðvitað til að vera hjá pabba sínum, Lindu, Hrafnkeli og Heiðdísi. En ég get ekki sagt það sama með mig...úfff...en þetta er partur af lífinu og lítið hægt að gera við því, þýðir ekkert að væla og skæla í sjálfsvorkun. Ég samgleðst þeim að vera saman. Ég hlakka líka mjög mikið til að fara norður, ég fer 22.des og skvísan mín kemur 26.des norður (þannig að þetta er ekki svo alvarlegt) og við komum heim 4.jan. Það á eftir að fara mjög vel um mig hjá mömmu og pabba...hlakka svoo til, yndilegt að vera á Akureyri um jól og sérstaklega hjá múttu og pabba.
En nú er það tiltekt...þýðir ekki að vera löt þótt maður sé einn í kotinu núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 22:45
Blogg...já Anna getur ennþá bloggað..eða gat ég það einhvern tímann ;)
Hææææjj... Af mér er allt gott að frétta, þrátt fyrir kreppuna, hef ekki ennþá fundið mikið fyrir henni en hún á eftir að skella á mig einn daginn
Ég er allavega ennþá að vinna hjá tannlækninum mínum... karíus og baktus hætta víst ekki að koma..sama hvernig ástandið er, sem betur fer .. .þannig Ekki nota tannþráð og hættið að fara í reglulegt eftirlit 
Ég er í skýjunum yfir "nýja" bílnum mínum..eða við mæðgur sko.
En þangað til næst, farið VEL með ykkur og ekki taka lífinu OF alvarlega þá deyr maður úr leiðindum.
kv Annapanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.8.2008 | 15:01
össsss....
Eigum við að ræða þetta veður eitthvað.....
Yndislegt veður hérna fyrir norðan.
Sólarkveðjur til allra og stórt knús á þá sem ég þekki 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2008 | 19:29
Hrakfallabálkur :)
Jæja...fyrst ég er byrjuð að segja "sögur" af mér sjálfri..
Einu sinni kom til mín góður vinur frá norðurlandinu og ætluðum við að eiga kózý helgi (sem hún var reyndar :) . Við ákváðum að fara fínt út að borða og klæddum okkur í sparifötin og fórum út. Ég var nú reyndar búin að segja honum að ég væri mjög seinheppin kona. En auðvitað hélt ég að ég gæti nú aðeins stjórnast í því (óheppninni), en svo var ekki.
Þegar við vorum búin að borða löbbuðum við niður Laugaveginn í "rómó" fíling hönd í hönd. Svo erum við að labba að bílnum mínum og löbbum fram hjá Vegas og einhvernvegin vakti sá staður forvitni mína og er ég að góna þangað þegar ég DETT ...já ég datt ....þetta leit ekki vel út...belive me. Ég er líka ein af þeim sem hlæ mikið og helst mest af sjálfri mér, þannig að það var smá tími sem fór í að hlæja áður en ég stóð upp hahahhah....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.7.2008 | 15:15
Ég er snillingur :-)
Ég held ég sé mesti snillingur í að eiga góðar setningar á réttum tíma.... hahahahha
Það var strákur hjá okkur í dag. Við vorum að taka mót fyrir krónu og vorum að ath bit hjá honum. Efnið er sett á tennurnar og hann látinn bíta saman, og það er smá súkkulaði-bragð af efninu til að gera þetta betra allt :)
Ég segi : þú mátt ekki kyngja heldur Bara bíta...hahahhahahah
svo hugsaði ég eftir á... öhhh er það ekki alveg öfugt eða... en ég HUGSAÐI það...ég vildi ekki alveg ganga fram af öllum hahhah
kv. annapanna prakkari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.7.2008 | 20:55
ohh...
Demit... var búin að skrifa svaka skemmtilega og vel skrifaða færslu, hún var bara frábær í alla staði hahahh..... og...allt datt út..
Nenni ekki að skrifa þetta allt aftur
Blessss 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)



tinnabessa
heidathord
helgikr
arnaeinars
gtg
ellyarmanns
gummiarnar
asdisran
agnar
freyrholm
swaage
vitinn
malacai
saxi
glamor
charliekart
kaffi
vefritid
brandurj
vinursolons
jax
gledigjafinn







